Bókasafnsferð
- Greinaflokkur: Bakki - Lundey
- Búin til þann 18.05.2012
Þá er hinni árlegu bókasafnsferð Lundeyjarstofu lokið. Með okkur í för voru börn fædd 2009 af Viðey og Þerney. Þetta árið skiptum við þeim í tvo hópa, sá fyrri fór þriðjudaginn 15. maí og sá seinni fór miðvikudaginn 16. maí. Að venju var þetta mjög skemmtilegt og börnin höfðu gaman bæði af strætóferðinni og bókasafnsheimsókninni.
Skólaheimsókn í Kelduskóla - Korpu
- Greinaflokkur: EBV
- Búin til þann 14.05.2012
Nú styttist heldur betur í komandi grunnskólagöngu og krakkarnir orðnir spenntir. Jóhanna kennari bauð okkur að því tilefni að koma í heimsókn en hún tekur við fyrsta bekk nú í haust.
Steinar og rannsóknir
- Greinaflokkur: Fjörulallalar
- Búin til þann 13.05.2012
Fjörulallar á Bakka voru mjög glaðir með steinanna sem þau fengu frá Bergi.
Það var sem sagt farið í það að skreyta þá og fengu allir fjörulallar að velja sér stein.
Heimsókn til Brynhildar listakonu
- Greinaflokkur: EBV
- Búin til þann 11.05.2012
Í dag fóru elstu börnin í heimsókn til Brynhildar listakonu sem býr í næsta nágrenni við okkur en hún er svo elskuleg að taka á móti okkur á hverju vori og sýna okkur töfraveröld sína. Heimili hennar er vinnustofa með fullt af fallegum listaverkum. Það er alltaf jafn spennandi að skoða hjá henni og fræðast um listina.
Fleiri greinar...
Bakkaberg
Skýrslur
Komandi viðburðir
Titill: Hvítasunnudagur
Mánudagurinn 28.05.2012
Titill: Annar í hvítasunnu
Fimmtudagurinn 31.05.2012
Titill: Starfsdagur
Sunnudagurinn 03.06.2012
Titill: Sjómannadagurinn
Sunnudagurinn 03.06.2012
Titill: Sveitaferð - Berg








